KR fór illa með ÍA

Bergdís Fanney Einarsdóttir skoraði tvö fyrir KR.
Bergdís Fanney Einarsdóttir skoraði tvö fyrir KR. mbl.is/Kristinn Magnússon

KR úr úrvalsdeild vann afar sannfærandi 6:0-útisigur á ÍA úr 2. deild í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta á Akranesi í dag.

Rasamee Phonsongkham kom KR yfir á 13. mínútu og Bergdís Fanney Einarsdóttir bætti við mörkum á 20. og 36. mínútu og var staðan í hálfleik 3:0.

Ísabella Sara Tryggvadóttir bætti við fjórða og fimmta marki KR á 72. og 82. mínútu og Laufey Björnsdóttir skoraði sjötta markið á lokamínútunni og þar við sat.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert