Færeyskur landsliðsmaður til KA

Pætur Petersen ásamt Hallgrími Jónassyni, þjálfara KA.
Pætur Petersen ásamt Hallgrími Jónassyni, þjálfara KA. Ljósmynd/KA

KA hefur fengið til liðs við sig færeyska knattspyrnumanninn Pætur Petersen en hann kemur til Akureyrar frá HB í Þórshöfn og hefur samið við félagið til þriggja ára.

Pætur er 24 ára gamall sóknarmaður sem lék sína fyrstu A-landsleiki fyrir Færeyjar í nóvember. Hann hefur orðið bæði færeyskur meistari og bikarmeistari með HB og leikið með liðinu í Evrópukeppni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert