Mikill liðstyrkur til ÍBV

Eyjamenn hafa fengið góðan liðstyrk.
Eyjamenn hafa fengið góðan liðstyrk. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Slóvenski knattspyrnumaðurinn Filip Valencic hefur skrifað undir eins árs samning við ÍBV.

Hann lék síðast með KuPS í Finnlandi en hefur komið víða við á atvinnumannaferlinum og m.a. leikið með Notts County, HJK, Stabæk, Inter Turku, Dinamo Minsk og Monza.

Valencic, sem er 31 árs sóknarsinnaður miðjumaður, átti sín bestu ár í Finnlandi og varð hann meistari með HJK árin 2017, 2018 og 2021.

Þá var hann valinn besti leikmaður ársins í efstu deild Finnlands árin 2017 og 2019. Hann varð markahæsti leikmaður deildarinnar seinna árið.

ÍBV lék í efstu deild á síðasta ári, í fyrsta skipti frá árinu 2019, og hafnaði í áttunda sæti.

ÍBV hefur jafnframt fengið Bjarka Björn Gunnarsson lánaðan frá Víkingi í Reykjavík en hann lék sem lánsmaður með Kórdrengjum í 1. deildinni seinni hluta síðasta tímabils.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert