Tíundi leikmaður Íslands smitaður á EM

Vignir Stefánsson kom til móts við landsliðið fyrir Frakkaleikinn á …
Vignir Stefánsson kom til móts við landsliðið fyrir Frakkaleikinn á laugardaginn. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Tíunda smitið í leikmannahópi Íslands á Evrópumótinu í handknattleik greindist í Búdapest í dag.

Vignir Stefánsson, sem kom til Búdapest fyrir helgina eftir sex smit í síðustu viku, greindist með jákvætt hraðpróf í morgun og beðið er eftir niðurstöðu PCR-prófs.

Í tilkynningu frá HSÍ segir að öll PCR-próf gærkvöldsins hafi verið neikvæð ef frá séu taldir þeir sem voru í einangrun.

Þá er staðfest að Björgvin Páll Gústavsson markvörður sé laus úr einangrun.

Leikur Íslands og Króatíu hefst klukkan 14.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert