Liðsauki til Búdapest

Bjarni Ófeigur Valdimarsson er á leið til Búdapest.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson er á leið til Búdapest. Ljósmynd/Skövde

Bjarni Ófeigur Valdimarsson er á leið til Búdapest þar sem hann mun hitta fyrir íslenska karlalandsliðið í handknattleik. 

Það er Vísir.is sem greinir frá þessu. Íslenska liðið mætir Svartfjallalandi í lokaleik sínum í milliriðli I í Búdapest á Evrópumótinu sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu.

Alls hafa ellefu leikmenn íslenska liðsins greinst með kórónuveiruna síðan á miðvikudaginn í síðustu viku og hafa því einungis fjórtán leikmenn verið á skýrslu hjá liðinu í síðustu leikjum en leyfilegt er að vera með sextán leikmenn á skýrslu.

Bjarni Ófeigur, sem er 23 ára gamall, er samningsbundinn Skövde í sænsku úrvalsdeildinni en hann gekk til liðs við félagið frá FH árið 2020.

Hann hefur spilað mjög vel fyrir Skövde á tímabilinu og skorað 62 mörk í deildinni til þessa en liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 20 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert