Strákarnir hafa sameinað þjóðina í tugi ára

„Þjóðfélagið er með boltanum núna, ömmur og afar, og allir Íslendingar,“ sagði Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður hjá Sýn, í EM-uppgjöri Dagmála, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins.

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik hefur hrifið þjóðina með sér á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu.

Þrátt fyrir að ellefu leikmenn liðsins hafi greinst með kórónuveiruna á mótinu var liðið nálægt því að komast í undanúrslit og leika um verðlaun á mótinu.

„Íslenska landsliðið, strákarnir okkar, hafa sameinað þjóðina í tugi ára og handbolti er okkar þjóðaríþrótt,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfoss.

„Við sem að vinnum í kringum handboltann þurfum að tala hann upp og ég er gríðarlega ánægður með það hvað uppsveiflan í samfélaginu er okkur í hag þessa dagana,“ bætti Halldór Jóhann við.

EM-uppgjör Dagmála má nálgast með því að smella hér.

Leikmenn Íslands fagna eftir frækinn sigur gegn Frökkum á EM.
Leikmenn Íslands fagna eftir frækinn sigur gegn Frökkum á EM. Ljósmynd/Szilvia Micheller
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert