Forráðamenn þýska knattspyrnuliðsins Borussia Dortmund eru óhressir út í Arsene Wenger vegna ummæla hans um hugsanleg félagaskipti framherjans Pierre-Emerick Aubameyang frá Dortmund til Arsenal.
Wenger sagði við fréttamenn í morgun að Aubameyang myndi passa vel inn í leik Arsenal og leikstíl þess og létu ummæli knattspyrnustjórans ekki vel í eyrum forráðamanna Dortmund.
„Við teljum það vanvirðingu að segja svona um leikmann í öðru liði. Við höfum ekki verið í neinu sambandi við Arsenal. Við gerum ráð fyrir að Wenger hafi nóg um að hugsa hvað varðar frammistöðu sinna eigin leikmanna,“ sagði Michael Zorc, stjórnarformaður Dortmund, í viðtali við Sky í Þýskalandi.