Skipti Sánchez og Mkhitaryan ganga í gegn

Alexis Sánchez er á leið til Manchester United.
Alexis Sánchez er á leið til Manchester United. AFP

Ensku úrvalsdeildarfélögin Manchester United og Arsenal hafa komist að samkomulagi um skipti á Alexis Sánchez og Henrikh Mkhitaryan. Sánchez fer til United og Mkhitaryan í hina áttina í hreinum skiptum.

Hvorugt félagið borgar hinu fyrir félagsskipti leikmannanna. Þeir munu báðir fara í læknisskoðun á næstu tveimur dögum og ganga frá félagsskiptum sínum. Lengd samninga þeirra Sánchez og Mkhitaryan er ekki ljós til þessa. 

Munu þeir skrifa undir samninga og vera kynntir hjá nýju félögum sínum á næstu tveimur dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert