Þeir Gareth Barry, Jonny Evans, Jake Livermore og Boaz Myhill, nokkrir af reynslumestu leikmönnum enska knattspyrnuliðsins West Brom, eru sloppnir við refsingu frá lögreglunni í Barcelona, þrátt fyrir að þeir stálu leigubíl í borginni síðastliðinn fimmtudag.
Leikmenn liðsins voru þá í æfingaferð í Barcelona og að sögn lögreglunar í Barcelona skelltu fjórmenningarnir sér út á lífið, utan leyfilegs útivistartíma leikmanna. Þá var hins vegar allt lokað og að lokum tóku þeir leigubíl á veitingastað sem var opinn allan sólarhringinn.
Frá veitingastaðnum lá leiðin upp á hótel liðsins í sama bíl, en í þetta skiptið án bílstjórans. Lögreglan var kölluð á hótelið og bílstjórinn náði í bílinn kl. 8. Ekki voru til næg sönnunargögn gegn leikmönnunum og sleppa þeir því við ákæru fyrir atvikið.