Liðsfélagi Gylfa fær langtímasamning

Idrissa Gueye fagnar marki með Everton.
Idrissa Gueye fagnar marki með Everton. AFP

Idrissa Gueye, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við félagið.

Gueye er 28 ára gamall Senegali, en hann gekk fyrst til liðs við Everton árið 2016. Eftir nýja samninginn er hann samningsbundinn félaginu til 2022. Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Everton, sagði við tilefnið í dag að um frábærar fréttir væri að ræða fyrir félagið.

Gueye kom til Everton frá Aston Villa, eftir að hafa áður leikið með Lille í Frakklandi. Hann er varnarsinnaður miðjumaður og á að baki 53 leiki með Everton, auk 48 landsleikja með Senegal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert