Ítalski varnarmaðurinn Matteo Darmian, leikmaður Manchester United, mun ganga í raðir Ítalíumeistara Juventus í sumar.
Að því er ítalskir fjölmiðlar greina frá í dag er allt klappað og klárt á milli félaganna varðandi félagsskiptin og mun bakvörðurinn hafa vistaskipti í sumar en hann hefur fengið fá tækifæri í liði Manchester United undir stjórn José Mourinho og hefur aðeins tekið þátt í fjórum deildarleikjum á tímabilinu.
Darmian er 28 ára gamall og kom til Manchester United frá ítalska liðinu Torinó árið 2015. Honum er ætlað að fylla skarð Svisslendingsins Stephan Lichtsteiner sem yfirgefur Juventus í sumar.