Manchester United mætir Tottenham

Manchester United komst áfram í gærkvöld með sigri á Brighton …
Manchester United komst áfram í gærkvöld með sigri á Brighton og mætir nú Tottenham. AFP

Rétt í þessu var dregið til undanúrslitanna í ensku bikarkeppninni en fyrir stundu varð Chelsea fjórða og síðasta liðið til að komast þangað.

Manchester United dróst gegn Tottenham og Chelsea mætir Southampton.

Undanúrslitaleikirnir fara fram á Wembley í London 21. og 22. apríl og úrslitaleikurinn er að vanda á sama stað laugardaginn 19. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert