Metur Salah á 150 milljónir punda

Mohamed Salah fagnar.
Mohamed Salah fagnar. AFP

Tony Cottee, fyrrverandi leikmaður West Ham, Everton og Leicester, segir Liverpool geta fengið 150 milljónir punda fyrir Mo Salah, endi félagið á að selja hann í sumar.

Salah er búinn að skora 28 mörk í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Frammistaða hans hefur vakið áhuga stærstu knattspyrnufélaga Evrópu og eru fjölmiðlar nú þegar byrjaðir að orða hann við Real Madrid. 

„Coutinho fór á 146 milljónir og Liverpool ætti að vilja svipað fyrir Salah, bara til að íhuga það að selja hann. Ef það kemur tilboð inn er ekki víst að hann vilji sjálfur fara. Hann hefur átt mjög góðu gengi að fagna,“ sagði Cottee. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert