WBA kom til baka eftir að hafa lent 2:0 undir á móti Liverpool og náði jafntefli í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Danny Ings kom Liverpool yfir á 4. mínútu og Mohamed Salah tvöfaldaði forystuna á 72. mínútu. Jake Livermore minnkaði muninn rúmum fimm mínútum síðar og þá jafnaði Salomón Rondón metin þegar tvær mínútur voru til leiksloka.
Jafntefli gerir þó lítið fyrir WBA sem situr í neðsta sæti deildarinnar með 25 stig, átta stigum frá öruggu sæti í deildinni.
Liverpool heldur sæti sínu í þriðja sæti deildarinnar með 71 stig. Jafntefli gefur Chelsea aukna möguleika í baráttu sinni um Meistaradeildarsæti, en þeir eiga eftir að mæta Liverpool.
WBA | 2:2 | Liverpool | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Leik lokið Jafntefli niðurstaðan. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |