Alisson spilar fyrsta leikinn

Alisson er mættur til Liverpool.
Alisson er mættur til Liverpool. AFP

Dýrasti markmaður heims, Brasilíumaðurinn Alisson, spilar fyrsta leik sinn fyrir Liverpool á laugardaginn kemur. Enska félagið keypti Alisson frá Roma á 67 milljónir punda á dögunum.

Liverpool mætir þá Napoli í Dublin í næstsíðasta leik sínum á undirbúningstímabilinu og staðfesti Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, að Alisson muni byrja leikinn. 

Markmaðurinn byrjaði að æfa með Liverpool í vikunni, en hann fékk lengra frí eftir HM í Rússlandi þar sem hann lék alla leiki Brasilíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert