Everton kaupir þrjá leikmenn

Yerri Mina er orðinn leikmaður Everton.
Yerri Mina er orðinn leikmaður Everton. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Everton gekk í dag frá kaupum á þremur leikmönnum; Yerri Mina og Andre Gomes frá Barcelona og Bernarnd frá Shakhtar Donetsk.

Everton borgar um 28,5 milljónir punda fyrir Mina, Bernard kemur án greiðslu og Andre Gomes kemur á eins árs lánssamningi. 

Yerri Mina stóð sig afar vel með kólumbíska landsliðinu á HM á meðan Bernard er búinn að vera einn besti leikmaðurinn í úkraínska boltanum undanfarin ár. André Gomes á 29 landsleiki með Portúgal. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert