Jón Daði skoraði annan leikinn í röð

Jón Daði Böðvarsson skoraði í dag.
Jón Daði Böðvarsson skoraði í dag. Ljósmynd/Reading

Jón Daði Böðvarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, var á skotskónum fyrir Reading þegar liðið vann öruggan 3:0 sigur á Hull í ensku B-deildinni í dag.

Jón Daði spilaði allan leikinn í fremstu víglínu og kom Reading í 2:0 á 70. mínútu, en hann skoraði einnig í síðasta leik þegar Reading tapaði 2:1 fyrir Norwich. Hann hefur nú skorað fimm mörk í fyrstu níu umferðunum í B-deildinni.

Reading er eftir sigurinn í dag með 8 stig í 20. sæti. Aston Villa, sem Birkir Bjarnason leikur með, tapaði 2:1 fyrir Sheffield Wednesday og er í 12. sæti með 13 stig. Birkir var ónotaður varamaður hjá Villa í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert