Cristiano Ronaldo hrósaði sigri á Old Trafford í kvöld þegar Ítalíumeistarar Juventus unnu 1:0 sigur gegn Manchester United í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld.
Argentínumaðurinn Paulo Dybala skoraði eina mark leiksins á 17. mínútu eftir undirbúning frá Cristiano Ronaldo. Juventus var sterkari aðilinn og sérstaklega í fyrri hálfleik. United-menn voru bitlausir en leikur þeirra batnaði í seinni hálfleik en sóknarleikurinn var slakur. Paul Pogba var nálægt því að jafna metin stundarfjórðungi fyrir leikslok en hann átti þá skot í stöngina.
Juventus stendur vel að vígi eftir þrjár umferðir. Liðið er með 9 stig, United 4, Valencia 2 og Young Boys 1.
Manchester City gerði góða ferð til Úkraínu en City hrósaði 3:0 sigri gegn Shakhtar Donetsk . David Silva, Aymeric Laporte og Bernardo Silva skoruðu mörk Manchester-liðsins. Í sama riðli skildu Hoffenheim og Lyon jöfn 3:3. City er komið á toppinn með 6 stig, Lyon 5, Hoffenheim 2 og Shakhtar Donetsk 2.
Eftir fimm leiki án sigurs í öllum keppnum tókst Real Madrid að leggja Viktoria Plzen að velli 2:1. Karim Benzema og Marcelo skoruðu mörk Evrópumeistaranna. Roma, sem vann CSKA Moskva 3:0, og Real Madrid hafa 6 stig, CSKA Moskva 4 og Viktoria Plzen.
Úrslitin í kvöld:
E-riðill:
Ajax - Benfica 1:0
Noussair Mazraoui 90.
F-riðill:
Hoffenheim - Lyon 3:3
Andrej Kramaric 33., 47. Joelinton 90. - Bertrand Traore 27., Tanguy Ndombele Alvaro 59., Memphis Depay 67.
Shakhtar Donetsk - Manchester City 0:3
David Silva 30., Aymeric Laporte 35., Bernardo Silva 71.
G-riðill:
Real Madrid - Viktoria Plzen 2:1
Karim Benzema 11., Marcelo 56. - Patrik Hrosovsky 79.
Roma - CSKA Moskva 3:0
Edin Dzeko 30., 43., Cengiz Under 51.