Risatilboð frá Kína í Arnautovic

Marko Arnautovic.
Marko Arnautovic. AFP

West Ham hefur borist risatilboð frá ónefndu kínversku liði í austurríska landsliðsmanninn Marko Arnautovic.

BBC greinir frá því að tilboð kínverska liðsins í Arnautovic hljóði upp á 35 milljónir punda, jafnvirði 5,4 milljarða íslenskra króna.

Arnautovic, sem er 29 ára gamall, kom til West Ham frá Stoke í júlí 2017. Hann er markahæsti leikmaður Lundúnaliðsins á tímabilinu, hefur skorað 8 mörk í 17 leikjum liðsins í öllum keppnum. Hann er samningsbundinn West Ham til ársins 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert