Rakel spilaði fyrsta leikinn fyrir Reading

Rakel Hönnudóttir kemur inn á sem varamaður í dag.
Rakel Hönnudóttir kemur inn á sem varamaður í dag. Ljósmynd/@ReadingFCWomen

Rakel Hönnudóttir lék í dag sinn fyrsta leik fyrir enska knattspyrnufélagið Reading er hún kom inn á sem varamaður á 85. mínútu í 0:3-tapi fyrir Arsenal á heimavelli. 

Rakel gekk í raðir Reading fyrir helgi og fór beint í leikmannahópinn í dag og byrjaði á varamannabekknum. 

Arsenal er aðeins einu stigi frá toppliði Manchester City og á leik til góða. Reading er í fimmta sæti með 18 stig, 16 stigum frá toppliðinu. Rakel og samherjar hennar mæta botnliði Yeovil á útivelli eftir tvær vikur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert