Alexis Sanchez virðist ekki vera með hugann við annað en að spila áfram fyrir Manchester United ef marka má viðtal við hann í tímaritinu Inside United magazine. Hann segist vilja vinna titla með liðinu og gleðja stuðningsmennina.
Slíkur málflutningur á þá væntanlega við næsta keppnistímabil. Úr því sem komið er er aðeins einn bikar sem United getur náð á þessu tímabili og það er Meistaradeild Evrópu. Ekki er beinlínis hlaupið að því að vinna þá keppni.
„Auðvitað vil ég gleðja stuðningsmenn United. Mig langar að skora mörk og ég langar að vinna bikara til að gleðja þá. Ég var miður mín þegar við töpuðu úrslitaleiknum í bikarnum gegn Chelsea. Mig langaði til að gleðja okkar frábæru stuðningsmenn sem troðfylltu Wembley. Hvert sem ég leit sá ég bara rauða litinn í stúkunni,“ segir Sanchez meðal annars en bútur úr viðtalinu var birtur á heimasíðu félagsins.