Erfiðasti og sá sætasti

Vincent Kompany fagnar með Sergio Aguero í dag.
Vincent Kompany fagnar með Sergio Aguero í dag. AFP

„Þetta var erfiðasti og sætasti titillinn til þessa. Liverpool spilaði gríðarlega vel í ár og átti ekki skilið að tapa," sagði Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, sem varði í dag Englandsmeistaratitilinn í fótbolta með 4:1-sigri á Brighton á útivelli. 

„Þetta er enn sætara því við vorum í keppni við magnað lið alla leitkíðina. Við vorum í erfiðum málum á tímabili en náðum að vinna þá á heimavelli og það réði að lokum úrslitum. Núna bíðum við spenntir eftir úrslitaleik bikarsins," sagði Kompany, en í úrslitaleiknum bíður Watford. 

„Það er fáránlegt hvað við héldum oft hreinu í síðustu 15 leikjunum okkar og við komum allir með mikilvæg mörk," sagði Vincent Kompany. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert