Chelsea tekur á móti Newcastle á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu klukkan 14 í dag. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á mbl.is.
Chelsea er í fimmta sæti deildarinnar með 14 stig en liðið hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Newcastle er í 17. sæti með átta stig en tókst að vinna sigur á Manchester United í síðustu umferð eftir sex leiki án sigurs þar á undan.