Það er sannkallaður risaleikur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en þá mætast Liverpool og Englandsmeistarar Manchester City á Anfield.
Liverpool er sex stigum á undan Leicester og Chelsea og sjö á undan Manchester City svo með sigri í dag geta lærisveinar Jürgens Klopp komið sér í draumastöðu í síðasta leiknum fyrir landsleikjafríið.
Ederson markvörðurinn frábæri í liði Manchester City spilar ekki í dag vegna meiðsla og mun Claudio Bravo standa vaktina á milli stanganna i liði Englandsmeistaranna. Joel Matip, Nathaniel Clyne og Xherdan Shaqiri eru á sjúkralistanum hjá Liverpool.
Líkleg byrjunarlið:
Liverpool: Alisson; Alexander-Arnold, Lovren, van Dijk, Robertson; Henderson, Fabinho, Wijnaldum; Salah, Firmino, Mané.
Manchester City: Bravo; Walker, Stones, Fernandinho, Mendy; Gundogan, De Bruyne, B Silva; Mahrez, Agüero, Sterling.
Flautað verður til leiks á Anfield í dag klukkan 16.30 og dómari leiksins verður Michael Oliver.