United vill fá Zaha aftur á Old Trafford

Wilfried Zaha í leikmeð Crystal Palace gegn Arsenal.
Wilfried Zaha í leikmeð Crystal Palace gegn Arsenal. AFP

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Manchester United ætli að reyna að fá Fílbeinsstrendinginn Wilfried Zaha aftur til liðs við sig.

United er sagt reiðubúið að punga út 70 milljónum punda fyrir Zaha í sumar en félagið keypti hann frá Crystal Palace árið 2013 fyrir 11 milljónir punda. Zaha náði sér ekki á strik hjá Manchester-liðinu og var lánaður til Crystal Palace og Cardiff áður en Palace keypti hann frá United árið 2015 fyrir 7 milljónir punda.

Arsenal reyndi að fá Zaha til liðs við í sumar en forráðamenn Arsenal voru ekki reiðubúinir að greiða 70 milljónir punda fyrir leikmanninn en það er sú upphæð sem Palace hefur sett á sóknarmanninn.

Zaha er ekki sáttur í herbúðum Crystal Palace og hefur ekki náð sér á strik á tímabilinu en hann á enn eftir að skora í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert