Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekknum er Burnley rúllaði yfir Bournemouth, 3:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Öll mörkin komu í síðari hálfleik og var sigurinn að lokum sannfærandi og er Burnley með 37 stig í áttunda sæti. Bournemouth er með 26 í 16. sæti.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við símann sport.