Missir af næstu leikjum Manchester City

Aymeric Laporte situr á vellinum eftir að hafa tognað í …
Aymeric Laporte situr á vellinum eftir að hafa tognað í leiknum við Real Madrid. AFP

Enska knattspyrnufélagið Manchester City verður án franska miðvarðarins Aymerics Laporte í næstu leikjum.

Pep Guardiola knattspyrnustjóri City staðfesti á fréttamannafundi í dag að hann yrði væntanlega  frá keppni í mánuð eftir að hafa tognað aftan í læri í fyrri hálfleiknum í sigurleiknum gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið.

Laporte missir af úrslitaleik deildabikarsins gegn Aston Villa á sunnudaginn og væntanlega af heimaleiknum gegn Real Madrid. Laporte var lengi frá keppni í vetur og var sárt saknað í varnarleik City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert