Manchester City átti ekki í nokkrum vandræðum með að vinna 5:0-sigur á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley í leiknum vegna meiðsla.
City er í öðru sæti með 63 stig, 20 stigum á eftir toppliði Liverpool. Burnley er í ellefta sæti með 39 stig.