Segir fyrirliðann ekki á förum

Pierre-Emerick Aubameyang í leiknum í gær.
Pierre-Emerick Aubameyang í leiknum í gær. AFP

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, er sannfærður um að fyrirliðinn Pierre-Emerick Aubameyang vilji vera áfram hjá félaginu. Aubameyang skoraði tvö mörk í sannfærandi 4:0-sigri á Norwich í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. 

Aubameyang, sem hefur skorað 19 mörk í deildinni á tímabilinu, á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og hefur hann verið orðaður við brottför. 

„Hann er til í að vera áfram hjá okkur. Hann er mjög ánægður hérna. Hann sér hvað við ætlum okkur og vonandi verður hann með okkur í þeirri vegferð. Nú er boltinn hjá þeim sem sjá um samningana,“ sagði Arteta við fréttamenn eftir leikinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert