Southampton lenti tveimur mörkum undir á heimavelli gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en vann engu að síður 3:2-sigur í fjörugum leik á St. Mary's-leikvanginum.
Eftir að Chris Wood og Matej Vydra komu Burnley í 2:0 forystu var komið að dýrlingunum að skora mörkin en Stuart Armstrong og Danny Ings jöfnuðu fyrir hálfleik. Nathan Redmond skoraði svo sigurmarkið eftir hlé en öll helstu tilþrif leiksins má sjá í spilaranum hér að ofan.