Jóhann og félagar í beinni á mbl.is

Jóhann Berg Guðmundsson og samherjar hans í Burnley sækja Leicester …
Jóhann Berg Guðmundsson og samherjar hans í Burnley sækja Leicester heim í dag. AFP

Leicester City tekur á móti Burnley í sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á King Power-leikvanginum í Leicester klukkan 14.00.

Útsendingin hefst kl. 13.30 með upphitun fyrir leikinn á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn. Flautað er til leiks klukkan 14.00.

Eftir fimm umferðir er Leicester í tólfta sæti deildarinnar með sex stig en Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru næstneðstir með aðeins eitt stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert