Skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning

Ben Doak skrifaði undir hjá Liverpool.
Ben Doak skrifaði undir hjá Liverpool. Ljósmynd/Liverpool

Ben Doak, vængmaður enska knattspyrnuliðsins Liverpool, hefur skrifað undir fyrsta atvinnumannasamning sinn, nokkrum dögum eftir að hann fagnaði 17 ára afmæli sínu.

Hinn skoski Doak lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Liverpool þegar hann kom inn á sem varamaður í leik gegn Derby County í enska deildabikarnum síðastliðinn miðvikudag.

Tveimur dögum síðar fagnaði hann 17 ára afmæli sínu og daginn eftir var hann á varamannabekknum í ensku úrvalsdeildinni í fyrstu sinn þegar Liverpool hafði betur gegn Southampton.

Doak, sem kom frá Celtic síðastliðið sumar, kom þó ekki við sögu í þeim leik en ljóst er að um afar viðburðaríka tæpa viku hefur verið að ræða hjá hinum bráðefnilega Skota.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert