Halda landsliðssæti þrátt fyrir vandamál

Kyle Walker er áfram í landsliðshópnum.
Kyle Walker er áfram í landsliðshópnum. AFP/Oli Scarff

Ivan Toney frá Brentford og Kyle Walker frá Manchester City eru báðir í enska landsliðshópnum í knattspyrnu sem Gareth Southgate tilkynnti í dag þó þeir eigi báðir við vandamál að stríða utan vallar.

Toney á yfir höfði sér langt bann vegna þátttöku í veðmálum tengdum fótboltanum og Walker er til rannsóknar vegna meintrar ósæmilegrar hegðunar á dögunum.

Harry Maguire er áfram í hópnum þó hann fái lítið að spila með Manchester United.

Ben Chilwell og Reece James eru með á ný eftir að hafa verið meiddir í síðasta landsliðsverkefni en Raheem Sterling er úr leik vegna meiðsla.

Enska liðið mætir Ítalíu og Úkraníu í fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM síðar í þessum mánuði en  og er þannig skipað:

Markverðir: Jordan Pickford, Nick Pope, Aaron Ramsdale.

Varnarmenn: Ben Chilwell, Eric Dier, Marc Guéhi, Reece James, Harry Maguire, Luke Shaw, John Stones, Kieran Trippier, Kyle Walker.

Miðjumenn: Jude Bellingham, Conor Gallagher, Jordan Henderson, James Maddison, Mason Mount, Kalvin Phillips, Declan Rice.

Sóknarmenn: Phil Foden, Jack Grealish, Harry Kane, Marcus Rashford, Bukayo Saka, Ivan Toney.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert