„Mjög dýrmætt fyrir Manchester City“

Enski knattspyrnumaðurinn Phil Foden, leikmaður Manchester City, var til umræðu í Vellinum á Símanum Sport á laugardaginn. 

Foden hefur verið frábær í meistaraliði Manchester City en hann hefur skorað 16 mörk í öllum keppnum.

„Það er mjög dýrmætt fyrir Manchester City að hafa svona leikmann innan sinna raða akkúrat núna,“ sagði Bjarni Þór Viðarson en hann var ásamt Gylfa Einarssyni gestur Tómasar Þórs Þórðarsonar á laugardaginn. 

Umræðuna í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert