Formúla-1 sýnd eingöngu á Viaplay

Frá upphafi Brasilíukappakstursins í Sao Paulo í fyrra.
Frá upphafi Brasilíukappakstursins í Sao Paulo í fyrra. AFP

Það er ekki langt þangað í það sem íslenskir mótorsportaðdáendur hafa eflaust verið að bíða eftir í allan vetur; upphafi keppnistíðar formúlu-1 sem hefst næstkomandi sunnudag, 28. mars, í Barein við Persaflóa.

Keppnisdagatal formúlunnar inniheldur 23 mót og hafa þau aldrei verið fleiri. Hér á landi verður eingöngu sýnt frá keppni á Viaplay, samkvæmt tilkynningu.

„Getur Mercedes-liðið viðhaldið yfirburðum sínum? Eða mun einhver annar loksins gera tilkall til heimsmeistaratitilsins sem þeir hafa einokað síðustu ár? Við munum vonandi fá svör við þessum spurningum þegar kappaksturinn í Barein hefst á sunnudaginn og þar með nýtt keppnistímabil í f-ormúlu 1, stútfullt af hasar úr fremstu flokki mótorsportsins. Eingöngu verður hægt að sjá allar keppnirnar í Formúlu 1 á Viaplay,“ segir í tilkynningunni.

Red Bull liðið kom öflugast frá þróunarakstri vetrarins en viðtekin venja liðanna í áranna rás hefur verið að mæta ekki þangað með öll leyndarmál sín og bílnýjungar. Með ökumennina Sergio Perez ogð Max Verstappen undir stýri er við miklu búist af Red Bull í titilkeppninni og því spáð að leikurinn verði ekki eins auðveldur Mercedesliðinu og átta undanfarin ár.

„Og hvað með Aston Martin, sem eru nú orðnir formúlu-1 lið eftir að hafa tekið yfir Racing Point. Gæti það með Sebastian Vettel, fjórfaldan heimsmeistara sem ökunann komið á óvart?,“ er spurt í tlklynningunni. Því svarar danski ökumaðurinn Tom Kristensen, nífaldur sigurvegari í sólarhringskappakstrinum í Le Mans í Frakklandi, jákvætt.


„Geta Red Bull og Verstappen gert atlögu að hinum sigurstranglega Lewis Hamilton frá upphafi tímabilsins? Og eru Scuderia Ferrari mættir aftur eftir martröðina árið 2020? McLaren eru á spennandi leið upp með Mercedes-vélarnar sínar og tvíeykið Norris og Ricciardo. Mun Vettel sjá eftir því að hafa fært sig yfir til Aston Martin? Og hvernig gengur endurkoma Alonsos? Það er margt að hlakka til; halli, loftaflsfræði og þrýstingur í dekkjum eru auðvitað þemu sem okkur varðar alltaf um. Formúla-1 2021 er byrjuð,“ segir Kristensen sem er sérfræðingur Viaplay um formúluna.

Ferrari hefur lent í ýmsum vandamálum undanfarin ár og það verður spennandi að sjá hvort þetta sé árið sem liðið leysir þau. McLaren hefur skipt Renault-vélinni út fyrir Mercedesvél. Það gerir liðið varla verra og með Daniel Ricciardo sem nýja stjörnuökuþórinn í liðinu, þá verður spennandi að sjá hvort þeir geta tekið skrefið nær þeim bestu. Og síðan er Fernando Alonso, ein stærsta stjarna formúlu-1 í seinni tíð, kominn aftur og til liðs við Renault-liðið, sem nú keppir undir nafninu Alpine. Með liðinu vann heimsmeistaratitilinn tvisvar, 2005 og 2006.

,,Það er virkilega gaman að fá aftur að taka þátt í því að færa Íslendingum skemmtilegustu íþrótt í heimi. Ég er mjög spenntur fyrir því að byrja og metnaðurinn greinilega mikill hjá Viaplay, umgjörðin er flott og útsendingarnar bjóða ekki eingöngu upp á hefðbundna útsendingu heldur fleiri valmöguleika eins og að fylgjast með innanúr bílum og fá allar upplýsingar varðandi tíma og þjónustuhlé, þannig geta áhorfendur valið hvað þeir horfa á og stýrt eigin upplifun. Áhuginn á formúlunni virðist líka vera að vaxa með hverjum deginum, Drive to survive hefur keyrt nýjan áhorfendahóp og keppnirnar í fyrra voru með besta móti. Það skemmir svo ekki fyrir að það stefnir allt í svakalegan slag á toppnum og ef Lewis Hamilton nær að landa sínum áttunda titli núna í haust, þá verður það sá erfiðasti hingað til, æfingarnar gefa til kynna að Red Bull og Verstappen séu í raun hraðari, en það kemur allt í ljós um næstu helgi hvar allir standa í raun og veru, ég get ekki beðið,“ Segir Kristján Einar Kristjánsson, formúlufræðingur Viaplay á Íslandi.


Hér fyrir neðan má sjá nýjustu uppfærslu keppnisdagatals formúlunnar:

Dags.                      Keppni

  1. mars Barein
  2. apríl Emilia Romagna
  3. maí Portúgal
  4. maí Spánn
  5. maí Mónakó
  6. júní Aserbaísjan
  7. júní Kanada
  8. júní Frakkland
  9. júlí Austurríki
  10. júlí Bretland
  11. ágúst Ungverjaland
  12. ágúst Belgía
  13. sept Holland
  14. sept Ítalía
  15. sept Rússland
  16. okt Singapúr
  17. okt Japan
  18. okt Bandaríkin
  19. okt Mexíkó
  20. nóv Brasilía
  21. nóv Ástralía
  22. des Sádí-Arabía
  23. des Abú Dabí
Frá keppni í formúlu-1.
Frá keppni í formúlu-1.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert