Balotelli og félagar úr leik

Leikmenn Lokomotiv Moskvu fagna sigurmarkinu.
Leikmenn Lokomotiv Moskvu fagna sigurmarkinu. AFP

Lokomotiv Moskva er komið áfram í 16 liða úrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir 1:0-heimasigur á Nice frá Frakklandi í síðari leik liðanna í dag. Lokomotiv fer áfram með samanlögðum 4:2-sigri.

Nice komst í 2:0 í fyrri leiknum með tveimur mörkum frá Mario Balotelli. Eftir það tók Lokomotiv völdin og skoraði þrjú mörk. Igor Denisov sá svo um að gera sigurmarkið í dag.

Fyrstu tvö liðin sem eru komin áfram í 16 liða úrslitin eru frá Moskvu því CSKA Moskva varð í gær fyrsta liðið til að tryggja sér áframhaldandi þátttöku í keppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert