Salah bjartsýnn á að ná HM

Mo Salah gengur af velli í gær.
Mo Salah gengur af velli í gær. AFP

Egyptinn Mo Salah er bjartsýnn á að meiðslin sem hann varð fyrir í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu fótbolta í gær komi ekki í veg fyrir að hann spili með þjóð sinni á HM í Rússlandi í næsta mánuði. 

Salah fór af velli með axlarmeiðsli í fyrri hálfleik eftir baráttu við Sergio Ramos og var óttast að hann yrði ekki með á HM vegna meiðslanna. 

„Þetta var mjög erfitt kvöld en ég er bardagamaður. Ég er bjartsýnn á að komast til Rússlands og gera ykkur öll stolt. Ást ykkar og stuðningur mun gefa mér þann styrk sem ég þarf,“ skrifaði Salah á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert