Kovacic vill yfirgefa Real Madrid

Mateo Kovacic á æfingu króatíska landsliðsins í Rússlandi.
Mateo Kovacic á æfingu króatíska landsliðsins í Rússlandi. AFP

Mateo Kovacic vill yfirgefa Real Madrid í sumar og komast til félags þar sem hann fær að spila reglulega en þetta sagði hann við spænska fjölmiðilinn Marca.

Kovacic er 24 ára gamall miðjumaður og er um þessar mundir í Rússlandi með Króatíu á heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Hann hefur aðeins byrjað 55 leiki fyrir Real Madrid frá því að hann gekk til liðs við félagið sumarið 2015.

„Ég myndi vilja spila meira hjá Real því ég elska fótbolta og að vera á vellinum,“ sagði hann við Marca.

„Ég veit að það er erfitt að komast í lið Real og hef skilning á því. Því tel ég vera fyrir bestu að ég fari til annars félags þar sem ég fæ að vera reglulega í byrjunarliði, ég er ekki ánægður þegar ég spila ekki.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert