Spænski markvörðurinn Iker Casillas hefur biðlað til fólks um að láta kollega sinn Loris Karius í friði en sá þýski hefur gerst sekur um ansi mörg mistök milli stanganna undanfarið.
Karius átti afleitan leik í úrslitum Meistaradeildar Evrópu gegn gömlu félögum Casillas Í Real Madrid. Síðan þá hefur hann átt á brattann að sækja í æfingaleikjum Liverpool og hreinlega gert hver mistökin á fætur öðrum, nú síðast í gærkvöldi í 3:1-tapi gegn Dortmund.
Karius hefur verið auðvelt skotmark netverja á samfélagsmiðlum en Casillas, sem spilaði yfir 700 leiki fyrir Real Madrid á árunum 1999 til 2015, hefur nú beðið fólk um að láta greyið Karius í friði.
„Munu þessar árásir á Karius einhvern tímann enda?“ skrifað Casillas á Twitter. „Það eru mörg alvarlegri vandamál í heiminum, látið strákinn í friði! Hann er manneskja eins og við hin.“
Ólíklegt er að Karius standi á milli stanganna hjá Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð en félagið eyddi á dögunum metfé í að fá hinn brasilíska Alisson til liðsins frá Roma á Ítalíu.