Hannes og félagar í fínum málum

Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Qarabag frá Aserbaídsjan, lið Hannesar Þórs Halldórssonar, er í fínum málum eftir fyrri leik sinn gegn Kukesi frá Albaníu í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Leikurinn fór fram í Shkodër í Albaníu og endaði með markalausu jafntefli.

Hannes Þór hefur ekki enn spilað með liðinu eftir að hann gekk í raðir þess eftir HM í Rússlandi þar sem hann er enn þá að jafna sig á meiðslum. 

Síðari leikurinn fer fram í Aserbaídsjan á fimmtudaginn eftir viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert