Áttundi sigur Guðjóns í röð

Guðjón Þórðarson er að gera mjög góða hluti með NSÍ.
Guðjón Þórðarson er að gera mjög góða hluti með NSÍ.

Guðjón Þórðarson stýrði NSÍ til sigurs áttunda leikinn í röð í færeysku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Liðið vann þá 2:0-sigur á Argja bóltfélagi. 

Landsliðsmaðurinn Klæmint Olsen skoraði bæði mörk NSÍ í seinni hálfleik. Liðið hefur spilað gríðarlega vel á leiktíðinni og er með 31 stig eftir 13 leiki. 

Guðjón hefur stýrt liðinu til sigurs þrettán sinnum. NSÍ hefur gert eitt jafntefli undir hans stjórn og aðeins tapað tveimur leikjum. NSÍ er einu stigi á eftir toppliði KÍ Klaksvíkur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert