Pellegrini úr leik næstu mánuðina

Lorenzo Pellegrini, lengst til hægri, sækir að markverði Armena í …
Lorenzo Pellegrini, lengst til hægri, sækir að markverði Armena í síðasta mánuði. AFP

Lorenzo Pellegrini, framherji Roma og ítalska landsliðsins í knattspyrnu, verður frá keppni næstu mánuðina.

Roma greinir frá því að Pellegrini hafi gengist undir aðgerð á ristinni og er reiknað með að hann verði frá æfingum og keppni næstu tvo mánuðina.

Pellegrini missir þar með af leik Ítala og Grikkja í undankeppni EM þann 12. þessa mánaðar þar sem Ítalir geta tryggt sér farseðilinn á EM.

Þessi 23 ára gamli framherji hefur spilað tólf leiki með ítalska landsliðinu og skoraði sitt fyrsta mark í sigri á móti Armeníu í síðasta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert