Atlético Madríd varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta er liðið vann 2:0-heimasigur á Lokomotiv Moskvu í lokaumferð riðlakeppninnar.
João Félix og Felipe skoruðu mörk Atlético og tryggðu liðinu annað sæti D-riðils. Juventus, sem hafði þegar tryggt sér toppsæti riðilsins, vann 2:0-útisigur á Bayer Leverkusen á útivelli. Cristiano Ronaldo og Gonzalo Higuaín skoruðu mörk Juventus. Leverkusen fer í Evrópudeildina.
Bayern München vann 3:1-sigur á lærisveinum Josés Mourinhos í Tottenham í München. Kingsley Coman kom Bayern yfir á 14. mínútu, en Ryan Sessegnon jafnaði á 20. mínútu. Bayern átti hins vegar lokaorðið í fyrri hálfleik þar sem Thomas Müller skoraði í blálok hans.
Philippe Coutinho bætti við þriðja marki Bayern í seinni hálfleik og tryggði þýska liðinu sigur. Bayern vinnur riðilinn með 18 stig og Tottenham endar í öðru sæti með 10 stig. Olympiacos fer í Evrópudeildina eftir 1:0-sigur á Rauðu stjörnunni á heimavelli.
Stórliðin Real Madríd og PSG enda í efstu tveimur sætum A-riðils og unnu þau örugga sigra í kvöld. Mauro Icardi, Pablo Sarabia, Neymar, Kylian Mbappé og Edinson Cavani skoruðu allir í 5:0-sigri PSG á Galatasaray og Rodrygo, Vinícius og Luka Modric skoruðu mörk Real í 3:1-sigri á Club Brugge.