Hatar United og slekkur á sjónvarpinu

Angel Di Maria
Angel Di Maria AFP

Knattspyrnumaðurinn Angel Di Maria þolir ekki sitt gamla félag Manchester United og slekkur á sjónvarpinu ef rauðu djöflarnir eru þar í mynd, samkvæmt liðsfélaga hans hjá PSG í Frakklandi.

Di Maria átti erfitt tímabil á Old Trafford, 2014 til 2015, eftir að hann gekk til liðs við United frá Real Madríd fyrir um 60 milljónir punda. Hann stoppaði líka stutt við og fór til Frakklands eftir eitt tímabil, þar sem hann er enn.

„Di Maria hatar Manchester United,“ sagði liðsfélagi hans Marcin Bulka í viðtali við Foot Truck. „Hann á engar góðar minningar þaðan. Þegar eitthvað sem tengist United kemur í sjónvarpinu þá skiptir hann strax um rás.“

Di Maria sneri eftirminnilega á Old Trafford með PSG í Meistaradeildinni fyrir ári síðan. Stuðningsmenn United létu hann heyra það en Argentínumaðurinn spilaði gríðarlega vel í 2:0-sigri PSG.

Angel Di Maria átti erfitt ár í Manchester.
Angel Di Maria átti erfitt ár í Manchester. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert