Spánn og Svíþjóð gerðu í kvöld fyrsta markalausa jafntefli Evrópumóts karla í fótbolta er þau mættust í Sevilla.
Spánverjar voru mun sterkari aðilinn allan leikinn og fengu nokkur mjög góð færi til að skora en Robin Olsen í sænska markinu varði nokkrum sinnum glæsilega.
Gerard Moreno og Pablo Sarabia fengu gullin tækifæri til að skora sigurmark í blálokin en í bæði skiptin varði Olsen vel.
Spánverjar voru 85% með boltann, áttu sautján skot gegn fjórum og 917 sendingar gegn 161. Þrátt fyrir það skipta liðin með sér stigunum og eru í öðru og þriðja sæti E-riðils á eftir Slóvakíu sem vann Pólland fyrr í dag.