Hálfsetinn völlur á úrslitaleiknum

Englendingar voru vel studdir af rúmlega 22 þúsund áhorfendum á …
Englendingar voru vel studdir af rúmlega 22 þúsund áhorfendum á leiknum við Króatíu. AFP

Rúmlega 40 þúsund manns mega mæta á úrslitaleik Evrópukeppni karla í knattspyrnu sem fram fer á Wembley-leikvanginum í London sunnudaginn 11. júlí. Þetta kemur fram á Sky Sports.

Bresk yfirvöld hafa gefið leyfi fyrir því að nýta helming sæta vallarins sem tekur tæplega 90 þúsund áhorfendur. Á leikjunum á vellinum fram að því verða um 22 þúsund áhorfendur en leyfilegt er að nýta fjórðung sæta sem stendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert