Erfið byrjun hjá nýju félagi

Guðlaugur Victor Pálsson lék sinn fyrsta leik með Schalke í …
Guðlaugur Victor Pálsson lék sinn fyrsta leik með Schalke í kvöld. Ljósmynd/Schalke

Schalke mátti þola 1:3-tap á heimavelli fyrir Hamburg í upphafsleik þýsku 2. deildarinnar í fótbolta í kvöld.

Guðlaugur Victor Pálsson lék sinn fyrsta leik með Schalke en hann kom til félagsins frá Darmstadt fyrir tímabilið. Guðlaugur lék allan leikinn á miðjunni. 

Íslenski landsliðsmaðurinn gat ekki komið í veg fyrir tap í fyrsta leik með liðinu. Schalke mætir Holstein Kiel í öðrum leik sínum í deildinni næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert