Sendur í einangrun með veiruna

Karim Benzema fagnar marki sínu fyrir Frakka gegn Sviss á …
Karim Benzema fagnar marki sínu fyrir Frakka gegn Sviss á EM í sumar. AFP

Franski knattspyrnumaðurinn Karim Benzema hefur verið sendur í einangrun í Madríd en hann greindist með kórónuveiruna þegar hann sneri aftur til starfa hjá Real Madrid eftir sumarfrí á þriðjudaginn.

Real Madrid staðfesti þetta á heimasíðu sinni í dag en Benzema fær að vonum ekki að æfa með liðsfélögum sínum á næstunni. Hann lék með Frökkum á EM í sumar og var því í lengra fríi en þeir sem ekki tóku þátt í keppninni. Þrjár vikur eru í fyrsta leik Real Madrid á nýju tímabili en liðið mætir Alavés í fyrstu umferð spænsku 1. deildarinnar laugardaginn 14. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert