Aalesund vann 6:1-stórsigur á útivelli gegn Åsane í 1. deild norska fótboltans í dag.
Davíð Kristján Ólafsson skoraði fyrsta mark Aalesund er hann jafnaði í 1:1 á 17. mínútu. Hann nældi sér í gult spjald á 85. mínútu í stöðunni 5:1.
Markið er það fyrsta sem Davíð skorar á leiktíðinni og hans annað deildarmark fyrir félagið. Aalesund er í þriðja sæti deildarinnar með 38 stig og í hörðum slag um sæti í efstu deild.