Skoraði í enn einum sigurleiknum

Rúnar Már Sigurjónsson í leik með CFR Cluj.
Rúnar Már Sigurjónsson í leik með CFR Cluj. Ljósmynd/CFR Cluj

Rúnar Már Sigurjónsson skoraði í sínum öðrum leik í röð í rúmensku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld þegar CFR Cluj sigraði Academica Clinceni 2:0 á heimavelli.

Rúnar skoraði fyrra mark CFR í leiknum á 29. mínútu en hann spilaði í tæpar 70 mínútur í kvöld. Þetta er fimmta mark hans á tímabilinu en þrjú hafa komið í deildinni og tvö í Evrópuleikjum.

CFR er með átta stiga forystu á toppnum, er með 45 stig úr 17 leikjum og hefur unnið fimmtán af leikjunum sautján. FCSB, sem áður hét Steaua, er með 38 stig í öðru sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert